Stórleikur á Hásteinsvelli í dag

04.júl.2016  10:26

Það verður sannkallaður stórleikur á Hásteinsvelli í dag kl. 17.30 þegar ÍBV tekur á móti Selfossi í 8 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna.  Selfoss hefur tvö ár í röð sigrað ÍBV í vítaspyrnukeppni en í dag ætla Eyjastúlkur að sýna hvað í þeim býr og leggja allt í sölurnar.
Eyjamenn mætum á Hásteinsvöll og hvetjum ÍBV til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Áfram ÍBV