5 frá ÍBV í u-14 ára landsliði kvenna

26.maí.2016  13:34

Andrea Gunnlaugsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Clara Sigurðardóttir, Linda Björk Brynjarsdóttir og Mía Rán Guðmundsdóttir hafa verið valdnar í úrtakshóp U-14 ára landsliðs kvenna. Æfingar fara fram á Reykjavíkursvæðinu dagana 3,4 og 5. júní. Þjálfari landsliðsins er Rakel Dögg Bragadóttir.

ÍBV óskar þessum efnilegu stelpum innilega til hamingju  með þennan árangur.