Handbolti - Sandra Dís framlengir við ÍBV

20.maí.2016  10:22

ÍBV heldur áfram að semja við unga og efnilega leikmenn félagsins. Í gærkvöldi skrifaði Sandra Dís Sigurðardóttur undir nýjan samning til tveggja ára. Sandra sem er örvhent skytta varð fyrir meiðslum í byrjun síðasta tímabils og missti þar að leiðandi af stórum hluta af tímabilinu. Hún sýndi það hins vegar í úrslitakeppninni að hún er tilbúin i slaginn við bestu lið landsins.
Það er mikil ánægja fyrir ÍBV að halda í þennann flotta leikmann.

Áfram ÍBV