Handbolti - Sandra Erlingsdóttir til ÍBV

18.maí.2016  22:49

Sandra Erlingsdóttir var nú rétt í þessu að skrifa undir tveggja ára samning við ÍBV. Þetta eru frábærar fréttir enda hefur Sandra verið einn efnilegasti leikmaður landsins og leikið með unglingalandsliðum Íslands. Sandra spilaði í efstu deild með kvennaliði Berlínar í vetur og kemur til með að spila bæði með meistaraflokk og unglingaflokk hjá ÍBV. Undirskriftin fór fram í VIP herbergi Fuche Berlin í kvöld. Söndru þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum en hún er dóttir Erlings Richardsonar og Vigdísar Sigurðardóttur. Það var Laufey Grétarsdóttir sem undirritaði samninginn fyrir hönd ÍBV.