Yngri flokkar - Fimm frá ÍBV í U-18 hjá HSÍ

09.maí.2016  16:37

Valinn hefur verið 22 manna hópur U18 ára landsliðs karla, hópurinn kemur saman til æfinga
9. - 12. júní n.k. Eftir það verður valinn 16 manna lokahópur sem tekur þátt í æfingamóti í
Þýskalandi í lok júní og EM í Króatíu í ágúst. Þjálfarar eru þeir Einar Guðmundsson og Kristján
Arason.  Frá ÍBV völdu þeir félagar fimm leikmenn sem eru, Andri Ísak Sigfússon, Elliði Snær Viðarsson, Logi Snædal Jónsson, Friðrik Hólm Jónsson og Ágúst Emil Grétarsson.  Það er frábært fyrir félag eins og ÍBV að eiga svona marga peyja í þessum hópi.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með valið