Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild karla

29.apr.2016  11:05

Knattspyrnuráð ÍBV hefur fengið til liðs við Pepsídeildarlið ÍBV enska leikmanninn Charles Vernam.  Hann er 20 ára framherji/framliggjandi miðjumaður og kemur á lánssamningi frá Championship félaginu Derby County.

Charles hefur verið á mála hjá Derby County frá árinu 2012 og hefur að undanförnu leikið með 21. árs liði félagsins sem er í harðri toppbaráttu í efstu deild þar, U21 Premier League.

Charles mun leika með ÍBV næstu 2-3 mánuði og mun fá leikheimild á næstu dögum.

Við vonumst einnig til að stuðningsmenn ÍBV, nær og fjær, taki vel á móti leikmanninum og hann muni upplifa sanna Eyjastemmingu á leikjum ÍBV.

Knattspyrnuráð ÍBV býður Charles velkominn á Eyjuna fögru og væntir mikils af honum.

ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.