Theodór Sigurbjörnsson íþróttamaður Vestmannaeyja 2015

11.feb.2016  11:05

Í gær 10. febrúar útnefndi íþróttabandalag Vestmannaeyja Theodór Sigurbjörnsson handknattleiksmann íþróttamann ársins 2015. Hákon Daði Styrmisson handknattleiksmaður var útnefndur íþróttamaður æskunnar.

Á hófinu voru landsliðsmenn í Eyjum verðlaunaðir og allir þeir sem unnu stóru titlana á síðasta ári. Héraðssambandið heiðrað einnig að þessu tilefni þá sem hafa unnið miki og óeigingjarnt starf fyrir íþróttahreyfinguna í gegnum tíðina. Hófið var haldið í Höllinni að viðstöddu fjölmenni.