Uppskeruhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja

09.feb.2016  14:47

Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20:00 verður uppskeruhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja í Höllinni. Hvetjum við leikmenn og velunnara félagsins til að mæta prúðbúna á hátíðina.
 Þeir leikmenn sem hafa spilað landsleiki á síðasta ári, þeir sem hafa unnið Íslands- eða bikarmeistaratitla og þeir sem eru handhafar  handbolta- eða knattspyrnumaður/kona ársins 2015 verða veittar viðurkenningar. Þá verða einnig útnefnd Íþróttamaður Vestmannaeyja  og iþróttamaður æskurnnar 2015 fyrir árið 2015.