Sísí Lára æfði með A-landsliðinu í knattspyrnu

08.feb.2016  13:20

Sigríður Lára Garðarsdóttir æfði um síðastliðna helgi með A-landsliði kvenna í knattspyrnu.  Æfingarnar voru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttulandsleik gegn Pólverjum ytra þann 14.febrúar.  Sísí Láru gekk mjög vel á æfingunum sem varð til þess að Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari valdi Sísí Láru í lokahópinn.  Þetta eru frábærar fréttir fyrir ÍBV en þess má til gamans geta að Elísa Viðarsdóttir var einnig valin í hópinn.

ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.