Felix Örn æfir með U-17 hjá KSÍ

08.feb.2016  09:07

Halldór Björnsson þjálfari U-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi Felix Örn Friðriksson í æfingahóp liðsins en æfingarnar fara fram um næstu helgi í Reykjavík.  Felix Örn hefur verið fastamaður í þessum hópi enda vel að því komin því Felix Örn þykir með efnilegri leikmönnum landsins í þessum aldursflokki.

ÍBV óskar Felix Erni innilega til hamingju með þennan árangur.