Fjórir frá ÍBV í lokahóp U-18 hjá HSÍ

19.nóv.2015  14:41

Valinn hefur verið hópur U-18 ára landsliðs karla sem tekur þátt í Sparcassen cup  í Mertzig í Þýskalandi milli jóla og nýárs. Liðið kemur saman til æfinga 20.-22 des. n.k.                                                                                                                                    Þjálfararnir Kristján Arason og Einar Guðmundsson völdu fjóra leikmenn ÍBV í hópinn.  Þetta eru þeir, Logi Snædal, Elliði Viðarsson, Friðrik Hólm og Andri Ísak Sigfússon.  Frábært fyrir ÍBV að svona margir peyjar séu valdir úr sama árgangi en þarna eru miklir sigurvegarar á ferð.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur