Ester og Erla Rós valdar í A-landsliðið

19.nóv.2015  14:32

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna hefur valið 20 leikmenn til að taka þátt í æfingum og tveim vináttulandsleikjum við B-lið Noregs í Noregi.  Leikirnir eru:
B-lið Noregs – Ísland 28. nóvember kl. 12.30 í Gjövik Fjellhall
B-lið Noregs – Ísland 29.nóvember kl 12.30 í Hakonshall, Lillehammer.                                                                                                     Ágúst valdi þær Ester Óskarsdóttur og Erlu Rós Sigmarsdóttur frá ÍBV.  Báðir þessi leikmenn hafa leikið afar vel fyrir félagið en þess má geta að Erla Rós er aðeins 19 ára gömul og því mikill heiður að vera valin í A-landslið.

ÍBV óskar Ester og Erlu Rós innilega til hamingju með þennan árangur