Þrír frá ÍBV í U-14 hjá HSÍ

18.nóv.2015  09:26

Helgina 21. og 22. nóvember æfir u14 hópurinn undir stjórn Maksim Akbachev. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi hópur æfir saman og hafa tæplega 70 strákar verið valdir til æfinga.

Maksim valdi þrjá leikmenn frá ÍBV í þennan hóp þá Arnór Viðarsson, Gauta Gunnarsson og Stefán Hjaltason.

Þrjár æfingar verða fyrir hópinn, allar í tvöföldum sal vegna stærðar hópsins.

Lau 21.nóv kl.15.00-17.00 Kaplakriki
Sun 22.nóv kl.9.00-11.00 & 13.00-15.00 Kórinn

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur