Sísí Lára á æfingar hjá A landsliði kvenna í knattspyrnu

18.nóv.2015  09:36

A landslið kvenna
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið 21 leikmenn til æfinga dagana 27. – 29. nóvember næstkomandi.
Sigríður Lára Garðarsdóttir var valin frá ÍBV og er sannarlega vel að valinu komin þar sem Sísí Lára átti framúrskarandi leiktímabil síðasta sumar og var í lok tímabils valin besti leikmaður ÍBV.

ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur