Drífa valin í afrekshóp

18.nóv.2015  09:31

Vikuna 22.-29. nóvember æfir afrekshópur kvenna undir stjórn Hilmars Guðlaugssonar. Þessi hópur er hugsaður til að tengja betur saman Olísdeildina, yngri landslið og A landslið kvenna. Þarna fá fleiri leikmenn að kynnast því starfi sem er unnið í kringum landsliðin.

Drífa Þorvaldsdóttir var valin frá ÍBV enda Drífa framtíðarleikmaður í handbolta.

Fyrsta æfing hópsins er sunnudaginn 22. nóvember kl.11 í Kórnum.

ÍBV óskar Drífu innilega til hamingju með þennan árangur