Kæru Eyjamenn og gestir

28.júl.2015  17:19

Á morgun miðvikudag kl. 18:00 verður farið í að merkja stæði í dalnum.

Eins og undanfarin ár fá þeir sem standa að hátíðinni með félaginu að byrja á að merkja sér stæði. Þar sem við erum alltaf að reyna að gera góða hátíð enn betri var ákveðið af Þjóðhátíðarnefnd að starfsmenn sem vinna að undirbúningi hátíðarinnar þurfi að sækja sér vesti í Týsheimilið. Biðjum við aðra gesti hátíðarinnar að virða þær tvær mínútur sem félagið hefur til að tjalda því aðeins þeir sem eru í vestum frá félaginu fá að fara fyrr inn á svæðið til að merkja sér stæði.

Einnig viljum við nota þetta tækifæri og óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar í von um að hún verði okkur öllum góð.

Þjóðhátíðarnefnd ÍBV íþróttafélags