Lokahóf 4. flokks

27.maí.2015  08:52

Unglingaráð bauð 4. flokki karla og kvenna í gær í grillveislu í Týsheimilinu þar sem boðið var upp á kjúklingaborgara með öllu og ís í eftirrétt. Þjálfarar flokkanna þau Unnur Sigmarsdóttir og Stefán Árnason fóru yfir tímabilið og veittu viðurkenningar.
 

ÍBV -arar Jörgen Freyr og Þóra Guðný

Mestu framfarir Lárus Garðar og Linda

Efnilegust Eva og Gabríel

Bestu leikmenn Frans og Sirrý