Fyrsti heimaleikurinn á morgun

27.maí.2015  13:22

Á morgun kl. 18.00 mætir kvennalið ÍBV liði Þróttar í fyrsta heimaleik sumarsins á Hásteinsvelli.  ÍBV hefur leikið tvo útileiki til þessa, gerðu jafntefli á Akureyri og töpuðu svo naumlega fyrir liði Selfoss á síðustu sekúndum leiksins 3-2.  Liðið hefur því heimsótt tvo erfiða útivelli en fær nú loks heimaleik og stefnir á sigur á Hásteinsvelli á morgun.

ÍBV hvetur alla Eyjamenn að mæta á Hásteinsvöll og hvetja liðið til sigurs.

ÁFRAM ÍBV