Tvær frá ÍBV í U-17 hjá HSÍ

11.maí.2015  12:51
Þeir Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggóson þjálfarar U-17 ára landsliðs Íslands í handbolta völdu um helgina þær Þóru Guðnýju Arnarsdóttur og Sirrý Rúnarsdóttur í 27 manna landsliðshóp sem æfir saman í vikunni og leikur svo tvo æfingaleiki gegn Færeyjingum um aðra helgi.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.