Þrír frá ÍBV í U-17 hjá HSÍ

11.maí.2015  13:03
Þeir Kristján Arason og Konráð Olavsson landsliðsþjálfarar U-17 ára í handbolta völdu þrjá leikmenn frá ÍBV í  20 manna landsliðshóp sem æfir saman í þessari viku og leikur svo tvo æfingaleiki gegn Færeyjingum um aðra helgi.  Landsliðsþjálfararnir völdu þá Elliða Viðarsson, Loga Snædal og Friðrik Hólm í hópinn.
ÍBV óskar þessum efnilegu leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur.