- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.is
Drög að niðurröðun í Herjólf
http://www.shellmot.is
Drög að Herjólfsferðum á Pæjumót TM
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.isFréttir
21. janúar 2012
Tryggvi með tvö í sigri gegn Selfossi
ÍBV vann í dag sigur á Selfossi, 4:3, í B-riðli Fótbolta.net mótsins. Leikurinn var bráðfjörugur og voru Selfyssingar yfir í hálfleik, 2:1, með mörkum Ólafs Karls Finsen sem kom frá Stjörnunni í vetur og Robert Sandnes sem er á reynslu hjá liðinu. Gunnar Már Guðmundsson, sem kom til ÍBV frá FH í vetur, hafði áður komið Eyjamönnum yfir úr víti.
Í seinni hálfleiknum jafnaði Yngvi Borgþórsson fyrir ÍBV og Tryggvi Guðmundsson kom liðinu svo yfir. Viðar Örn Kjartansson, sem lék um tíma með ÍBV, jafnaði metin í 3:3 fyrir Selfoss með marki úr víti skömmu fyrir leikslok en Tryggvi skoraði öðru sinni strax í kjölfarið og tryggði ÍBV sigur.
mbl.is greindi frá.
Til baka













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011