Mikill áhugi er fyrir þrettándanum ef marka má bókanir hjá flutningsaðilum. Fullt er fyrir bíla í allar ferðir Herjólfs ef frá er talin fyrsta ferð frá Landeyjarhöfn á föstudaginn. Einnig er fullt í síðustu tvær ferðirnar á fimmtudeginum. Hjá flugfélaginu Erni er fullt í seinniparts vélina og örfá sæti laus í þá fyrri.
Fréttir

05. janúar 2011

Mikið bókað í tengslum við Þrettándann Einungis nokkur stæði laus fyrir bíla í fyrstu ferð Herjólfs

Mikill áhugi er fyrir þrettándanum ef marka má bókanir hjá flutningsaðilum. Fullt er fyrir bíla í allar ferðir Herjólfs ef frá er talin fyrsta ferð frá Landeyjarhöfn á föstudaginn. Einnig er fullt í síðustu tvær ferðirnar á fimmtudeginum. Hjá flugfélaginu Erni er fullt í seinniparts vélina og örfá sæti laus í þá fyrri.

Það er því um að gera fyrir þá sem að ekki enn eru búnir að tryggja sér far að hafa hraðar hendur að ná sér í far. Og við minnum á að það er frítt á þrettándagleðina.
Til baka