- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
Fréttir
25. júlí 2010
Flottur sigur ÍBV á Val í dag
ÍBV sigraði í dag liðsmenn Vals. Fyrri hálfleikurinn var mjög lélegur, ÍBV liðið náði ekki að spila boltann á milli síni í miklum mótvind. Valsmenn spiluðu mun betur en ÍBV og nýttu þeir aukspyrnu sem þeir fengu og komu sér í 0-1 stöðu þegar rúmlega 9 mínútur voru liðnar af leiknum.
ÍBV getur talist heppið að hafa ekki fengið á sig fleiri mörk í fyrri hálfleik en liðsmenn Vals áttu nokkur góð færi sem þeir nýttu sér ekki.
Í seinni hálfleik gerði Heimir Hallgríms þjálfari ÍBV tvær breytingar, setti inn Danien markaskorara úr síðsta leik og Ásgeir Aron sem átti flottan leik í síðsta leik. Danien var ekki lengi að hafa áhrif á leikinn þegar hann skoraði hann stór glæsilegt mark lengst fyrir utan teig og jafnaði leikinn á ‘57 mínútu. 3 mínútum síðar lagði Danien boltann fyrir Tryggva sem skaut fyrir utan teig og kom ÍBV yfir.
ÍBV heldur betur búnir að taka sig saman í andlitinu og var allt annað lið í seinni hálfleik og áttu Valsmenn lítið í lið ÍBV sem gull tryggði sér sigurinn þegar fyrirliði ÍBV Andri Ólafsson var hindraður inn í teig og dæmd var vítaspyrna. Tryggvi Guðmundsson fór á vítapunktinn og skoraði 3. mark ÍBV á ’79 mínútu.
Frábær sigur Eyjamanna staðreynd og virðist baráttugleði Eyjamanna ætla að koma liðinu mjög langt í ár.
ÍBV hefur nú unnið 3 af 5 heimaleikja hrinunni. ÍBV tekur á móti Hafnarfjarðar liðunum FH og Haukum 5. og 8. ágúst.













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011