- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.is
Fréttir
14. febrúar 2010
Sigur í döprum leik
ÍBV marði sigur gegn Þrótti 26-27, eftir að hafa verið undir í hálfleik 16-11.
Pálmi Harðarson var á leiknum og segir hann frá honum hér:
ÍBV mætti Þrótti í íþróttahúsinu við Austurberg fyrr í dag en leiknum var frestað í gær vegna ófærðar. Ein breyting var gerð á leikmannahópi liðsins frá síðasta leik en Hjörvar kom inn í hópinn í stað Hauks.
ÍBV hafði yfirhöndina í upphafi leiks og voru fyrri til að skora. Vörnin var þó slök og Þróttarar náðu að halda í við okkar menn. Um miðbik fyrri hálfleiks hrökk síðan allt í baklás í sóknarleik ÍBV ásamt því að vörnin hélt áfram að leka. Þróttar gengu á lagið, skoruðu nokkur mörk í röð og náðu upp forskoti. Það sem eftir lifði hálfleiksins var leikur okkar manna á svipuðum nótum og leiddu Þróttarar í hálfleik 16-11.
Einhver hefur þrumuræðan verið hálfleik því svo virtist sem allt annað lið ÍBV hafi mætt til leiks í síðari hálfleiks. Okkar menn fóru loksins að spila vörnina af krafti og Kolbeinn vaknaði til lífsins í markinu. Þessu fylgdi svo nokkur auðveld mörk úr hraðarupphlaupum. Þá kom Arnar inn í sóknarleikinn og stýrði honum af mikilli festu og skynsemi. Þrátt fyrir að Þróttarar hafi kallað inn á völlinn að Arnar væri einhæfur með eindæmum tókst honum að fífla þá með línusendingum hægri-vinstri . Náðu leikmenn ÍBV að setja einhver 7-8 mörk í röð á Þróttara og leiddu með 5 mörkum er 12 mín lifðu leiks. Undir lokin slökuðu svo okkar menn full mikið á klónni og hleyptu Þrótturum aftur inn í leikinn. Lokatölur í Austurbergi 26-27.
Þrátt fyrir að himinn og haf skilji liðin að í deildinni áttu okkar menn í miklu basli með spræka leikmenn Þróttar og óhætt er að segja að leikmenn ÍBV geta talist heppnir með að ganga burt með tvö stig frá leiknum í dag. Með sigrinum í dag festi ÍBV sig enn frekar í sessi í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig eftir 12 leiki. Næsti leikur liðsins er heimaleikur á móti Fjölni á laugardaginn kemur en með honum hefst þriðja umferð deildarinnar.
Upplýsingar um markaskorara eru á huldu.
Pálmi Harðarson skrifar úr borg óttans.













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011