- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.isFréttir
04. janúar 2010
Dagskrá þrettándahelgarinnar tilbúinn
Þá er dagskráin tilbúinn fyrir þrettándagleðina sem að verður um næstu helgi. Óhætt er að segja að dagskráin sé með fjölbreyttu sniði, eitthvað fyrir alla. Hægt er að sjá dagskránna með því að smella á meira.
8. – 10. janúar 2010
Föstudagur
15.30 – 17.00: Grímuball Eyverja í Höllinni
Jólasveinninn færir öllum börnum nammipoka og þátttökupening. Sérstök verðlaun verða veitt fyrir líflegustu framkomuna, besta heimahannaða búninginn og besta keypta búninginn.
19.00: Hin eina sanna Þrettándagleði ÍBV
(Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll)
00.00: Þrettándaball – Grímuball fyrir fullorðna
Vinir vors og blóma leika fyrir dansi
Útsölur og þrettándatilboð í fjölda verslanna
Laugardagur
11.00 til 16.00: Langur laugardagur í verslunum
Sértilboð og tröllaútsölum
12.00: Álfa og tröllaréttir á veitingastöðum bæjarins.
Sérstakur töllamatseðill. Blanda af léttum réttum fyrir þá sem þjakaðir eru af samviskubiti eftir jólahátíðina og fæði fyrir þá sem þurfa að jafna sig eftir áttök þrettándahátíðarinnar
10.00 til 15.00: Tröllagleði í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Foropnun útivistarsvæðis Íþróttamiðstöðvar Vestmanaeyja. Frítt inn fyrir alla.
Fjölskylduleikir í öllum íþróttasölum undir stjórn íþróttaþjálfara
Sundþrautir og leikir, þrautabrautir, Ægir með kynningu á „Bodsía“ og fl.
Köruboltaþrautir. Handbolti. Knattspyrna.
Atriði úr Pétri Pan í uppfærslu Leikfélags Vestmannaeyja
Andlitsmálning, Lifandi tónlist
14.00 – 16.00
Opið hús á Slökkvistöð Vestmannaeyja. Tæki og tól til sýnis m.m.
14.00 – 16.00
Opið hús á náttúrugripasafninu
Frítt inn
16.00: Svölukot. - Gimsteinar meistaranna - Opnun á sýningu á helstu gimsteinum listaverkasafns Vestmannaeyjabæjar – Lifandi tónlis m.m.
Sýning á málverkum Kjarvals og annarra meistara sem eru í eigu Vestmannaeyjabæjar.
Veitingastaðir - Local food í Eyjum
Matreiðslumenn og gestakokkar á veitingastöðum bæjarins töfra fram hið besta úr vestmannaeysku hráefni. Lifandi tónlist á einhverjum stöðum.
Lundinn – Vulcano Café – Café Cornero opið fram eftir nóttu.
Sunnudagur
11.00: Barna og fjölskylduguðþjónusta í Landakirkju
13.00: Tröllamessa í Starfkirkjunni
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson messar í stafkirkjunni
14.00: Álfar og tröll í Eyjum - Upplestur og sögur í bókasafni Vestmannaeyja.
Valdir leikarar leika og lesa álfa- og tröllasögur úr Eyjum
14.00 til 16.00
Opið hús á sögusetrinu 1627 og Pálsstofu













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011