- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- English
- Akademían
- Orkan og ÍBV
- Skipurit
- ÍBV gegn einelti
Nýjast á hliðarsíðum

Gleðilegt nýtt ár
http://www.dalurinn.isVíti í Vestmannaeyjum
http://www.shellmot.is
Pæjumót TM 2012
http://paejumot.ibv.is
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.
http://www.eyjamenn.isFréttir
12. nóvember 2009
Þrettándinn álfa og tröllahátíð
Góðar hugmyndir um innlegg í dagskrá vel þegnar
Komin er nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleði ÍBV um helgi. Þetta hefur gefist vel og er hátíðin farin að lokka aukin fjölda gesta til Eyja til ánægju og hagsbóta fyrir hátíðina og samfélagið allt.
Nk. þrettándagleði verður haldin föstudaginn 8. janúar 2010.
Til þess að nýta þau sóknarfæri sem þessu fylgja hefur Vestmannaeyjabær ásamt ÍBV íþróttafélagi stofnað til samstarfs við grasrótarhreyfingu hagsmunaaðila með það fyrir augum að gera þrettándahelgina að veglegri bæjarhátíð, sem stendur alla helgina 8. – 10. janúar. Hátíð undir nafninu Þrettándinn – álfa og tröllatíð.
Undirbúningur er nú hafin og ýmsar hugmyndir á lofti s.s. fjölskylduhátíð í Íþróttamiðstöðinni, tröllamatseðlar og tröllatilboð í verslunum og á veitingastöðum bæjarins, sögustundir um álfa og tröll, grímuball, dansleikur, tónleikar og skemmtanir. Höfuð áhersla verður lögð á uppbyggjandi fjölskyldu- og Eyjagleði með þátttöku allra þeirra hagsmunaaðila sem áhuga hafa á aðkomu.
Fyrirtæki og einstaklingar, sem áhuga hafa á því að koma að dagskránni með einum eða öðrum hætti eru hvattir til að hafa samband við Vestmannaeyjabæ. postur@vestmannaeyjar.is.
Þá eru hagsmunaaðilar hvattir til að koma á undirbúningsfund stýrihóps mánudaginn 23. nóvember kl. 10.00 á bæjarskrifstum Vestmannaeyja.













Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia © 2011