- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
Fréttir
16. september 2009
Búið að ákveða tímasetningu á þrettándanum.
Þá hefur þrettándanefndin komið saman og lagt drög að næsta þrettánda. Eitt af því fyrsta sem þarf að ákveða er dagsetning á hátíðarhöldunum. Ákveðið var að færa þrettánda-hátíðina til 8. Janúar sem að er föstudagur og er áætlað að herlegheitin hefjist klukkan 19.00.
Í fyrra var þrettándinn einnig færður fram að helgi og mæltist það vel fyrir. Mikið af fólki mætti í gönguna og enn fleira fólk var á vellinum. Annars er verið að ræða ýmsar nýjungar í nefndinni og verða þær vonandi kynntar áður en langt um líður.
Til baka













