Pistlar

11. janúar 2012

Annáll ÍBV-Íþróttafélags

Árið 2011 var viðburðaríkt hjá ÍBV íþróttafélagi bæði innan vallar og utan.

Árið hófst að vanda á þrettándagleðinni sem er orðinn jafn fastur liður í dagatali bæjarbúa og jólin. Það er gaman að sjá að brottfluttir Eyjamenn, konur og börn – og jafnvel fólk með lítil tengsl til Eyja – er farið að leggja leið sína í auknum mæli á þessum árstíma og taka þátt í gleðinni. Víst er að ef hægt verður að sigla í Landeyjahöfn á þessum tíma þá mun fjölga verulega í bænum á meðan á þessu fjöri stendur. Einnig hafa verslanir í bænum og fyrirtæki verið dugleg við að koma til liðs við hátíðna á ýmsan hátt með tilboðum og öðrum glaðningi sem kenndur er við álfra, tröll og aðrar fornynjur er sjást á malarvellinum þessa kvöldstund í janúarbyrjun ár hvert. Fyrsta vetrarhátíðin á Íslandi er því orðin að veruleika.

 
Meira >

09. september 2011

Æfingagjöld lægst hjá ÍBV! Athugasemd við úttekt á æfingagjöldum

Fréttir birta þarfa og góða úttekt á æfingagjöldum hjá félögum sem eiga lið í Pepsí-deildinni. Það eru þó nokkrir punktar sem að vantar inní greinina hjá Frétta-mönnum. Fyrir það fyrsta er ekki minnst á að ÍBV-íþróttafélag greiðir allan ferðakostnað yngri flokka í Íslandsmót (reyndar greiðir aðalstjórn ferðakostnað allra flokka félagsins í Íslandsmót). Á þetta er minnst í úttektinni hjá öðrum félögum. Hjá Fram (bara í knattspyrnu) og hjá Grindavík (hjá elstu flokkunum). Félögum sem búa við margfalt minni ferðakostnað en við Eyjamenn erum að glíma við.
Meira >

05. ágúst 2011

Hásteinsvöllur – öflugur heimavöllur, okkar vígi.

Framundan er hörð baráttu hjá mfl. karla í knattspyrnu í toppslag Pepsí-deildarinnar.  Liðið hefur sýnt það að á góðum degi er geta þess nægjanleg til að sigra öll lið í deildinni.  Hins vegar hefur liðið átt misjafna leiki inn á milli og þá hafa tapast dýrmæt stig í toppbaráttunni.  Hér eftir má ekkert slíkt gerast ef við ætlum að eiga möguleika á því að sjá hvítklædda liðsmenn okkar hampa titlinum frekar en þá röndóttu.

sjá meira

Meira >
Eldri pistlar